5.flokkur kvenna Vals

Snillingar

28.01.2012 12:23:51 / Lobba

Inniæfing á morgun í Valsheimili

Sælar stelpur

Inniæfing verður á morgun, sunnudag.

Æfingin byrjar klukkan 10:50 og stendur til 12:30.

Við þjálfarar erum mjög sátt með ykkar eftir gærdaginn. Við sáum að öllum fannst skemmtilegt og við höfðum líka alveg svakalega gaman. :)

Kveðja
- Birkir Örn og Magga


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.01.2012 21:13:03 / Lobba

Gátlisti fyrir gistinóttina hjá 5.fl kvenna

• Hlý föt – Húfa, vettlingar, úlpa, hlýjar buxur ofl.
• Æfingarföt – Innanhúss
• Náttföt
• Tannbursti
• Nesti eftir æfinguna
• 1000 kr
• Myndavél
• Dýnu
• Sæng/svefnpoka
• Kodda

Dagskrái hefur aðeins breyst eins og þið vissuð frá æfingunni í dag.

Hvetja mömmu og pabba að koma í foreldraboltann :)

Kveðja
- Birkir Örn og Magga

» 6 hafa sagt sína skoðun

24.01.2012 21:40:29 / Lobba

Gistinótt í Valsheimilinu - Dagskrá

Sælar stúlkur

Nú er dagskrá klár fyrir gistinóttina á föstudaginn.

Dagskráin er þannig:

Föstudagur:

14:45-15:50 – Innanhúsæfing

15:55-16:10 – Næring – Það sem þið eigið að koma með nesti sjálfar

16:15 – 17:30 – Ratleikur 

17:45-18:45 – Keila

19:00 – 20:00 – Matur – Foreldrar elda

20:00 – 21:00 – Frítími - Koma mér fyrir - Flott ef foreldrar koma með svefndótið hérna.

21:00 – 22:00 - Foreldrabolti

22:00 – 00:00 – Félagslegt og rólegheit

 

Laugardagur:

10:00 – 11:00 – Taka til og koma sér heim

Eins og þið sjáið hér að ofan þá eiga þið að koma með ykkar eigið nesti sem þið borðið strax eftir æfingu áður en skemmtunin byrjar.
Annað sem vert er að minnast á er að það væri rosalega gott ef foreldrar myndu koma með svefndótið ykkar þegar þau mæta í foreldraboltann. Þá þurfið þið ekki að mæta með það þarna um miðjan dag.

Kostnaður vegna viðburðarins eru litlar 1000krónur á stúlku. Borgað í peningum á staðnum.

Kveðja
- Birkir Örn og Magga

» 16 hafa sagt sína skoðun

22.01.2012 21:26:51 / Lobba

Vikan hjá okkur

Sælar stelpur

Gistinótt í Valsheimili fer að öllum líkindum fram um helgina. Eigum eftir að fá svör frá húsverði með að festa sal. Sendum út frekari póst um gistinóttina á næstu dögum.

Vikan verður þannig:

Mánudagur: Æfing 15:10-16:30
Þriðjudagur: Æfing 15:00-15:50 - Inniæfing - Síðan ætlum við að horfa á seinni hálfleikinn í leiknum saman.
Miðvikudagur: Frí
Fimmtudagur: 15:10-16:30
Föst, laug, sun - ??? - Nánar um það á næstu dögum.

Mæta með mæði inni- og útidót á æfingar. Mæta klukkan 15:00 þær sem geta svo við getum nýtt okkur tímann inni.

Kveðja
- Birkir Örn og Magga

» 8 hafa sagt sína skoðun

20.01.2012 21:04:39 / Lobba

Æfingin á sunnudaginn. Breyttur tími!!

sælar stelpur Æfing hjá okkur er kl 10:00 á sunnudaginn innanhús. Commentið þegar þið eruð búnar að meðtaka þessi skilaboð og látið þetta endilega ganga ykkar á milli :) kv, Magga og Birkir Örn

» 10 hafa sagt sína skoðun

16.01.2012 14:04:02 / Lobba

Vikan hjá okkur

Sælar stúlkur góðar

Við þjálfarar komum heim á þriðjudagsmorgun. Kristín Ýr verður með æfinguna í dag. Þið passið vel upp á boltana okkar.

Vikan hjá okkur verður á þennan veg:

Mánudagur: Æfing 15:10-16:30 - Kristín Ýr sér um hana
Þriðjudagur: Æfing 15:10-16:30
Miðvikudagur: Frí
Fimmtudagur: Æfing 15:10-16:30
Fösturdagur: Æfing 14:45-15:50 - Inni
Helgarfrí

Muna að koma með innanhússkó á föstudaginn. Það er ekki í boði lengur að vera á sokkalistunum eða á tánum.

Kveðja
- Birkir Örn og Magga


» 12 hafa sagt sína skoðun

11.01.2012 20:01:07 / Lobba

Næstu dagar

Sælar stelpur Eins og þið vitið þá erum við þjálfarar að fara erlendis um helgina. Við missum af æfingu á fimmtudag og mánudag. Thelma Björk leikmaður meistaraflokks verður með æfinguna á morgun,fimmtudag og Kristín Ýr verður með æfinguna á mánudag. Við hvetjum ykkur til að mæta með bæði inni- og útidót á þessar æfingar. Þið komist væntanlega á útiæfingu á morgun. Síðan kemur í ljós með mánudagsæfinguna. Þið þurfið að taka ábygð á boltunum. Karen og Diljá sjá um boltana á morgun, fimmtudag og Eygló og Signý sjá um boltana á mánudag. Telja þá ofaní og uppúr. Við þurfum auðvitað ekki að segja það að allar þurfa að hjálpast að þó svo þessar eigi að taka þá inn. Kveðja - Birkir Örn og Magga

» 5 hafa sagt sína skoðun

08.01.2012 17:56:46 / Lobba

Vikan hjá okkur

Hæ hæ

Vikan hjá okkur verður á þessa leið:

Mánudagur: Æfing kl 15:10-16:30
Þriðjudagur: Æfing kl 15:10-16:30
Miðvikudagur: Frí
Fimmtudagur: Æfing kl 15:10-16:30
Föstudagur: Frí

Frí um helgina.

Við Birkir förum erlendis á fimmtudaginn og verðum því ekki í símasambandi frá fimmtudegi-mánudags. Kristín Ýr verður með æfinguna á fimmtudaginn og Katla Rún annan mánudag.

Kveðja
- Birkir Örn og Magga

» 6 hafa sagt sína skoðun

03.01.2012 22:52:07 / Lobba

Æfingar á nýjan leik :)

Sælar stelpur

Nú byrjum við aftur að æfa....       ....loksins.

Eins og þið vitið þá bætist ein æfing á viku við hjá okkur á föstudögum klukkan 14:45-15:50 innanhús í Sal 1.

Vikan hjá okkur er þá þannig:

Miðvikudagur: Frí
Fimmtudagur: Æfing 15:10-16:30
Föstudagur: Æfing 14:45-15:50 (inni)
Helgi: Frí

Við höldum áfram að keppa reglulega æfingaleiki og síðan byrjar Reykjavíkurmótið fljótlega.

Kveðja
- Birkir Örn og Magga


» 6 hafa sagt sína skoðun

29.12.2011 00:36:32 / Lobba

Nýtt skráningarkerfi hjá Val

Skráningar hafnar á nýrri skráningarsíðu Vals                   

 

Knattspyrnufélagið Valur er að taka í notkun nýtt skráningarkerfi og nú þurfa allir forráðamenn að skrá börn sín og ganga um leið frá greiðslu, þetta á líka við um þá sem þiggja akstur með Valsrútunni. Slóðin inn á skráningarvefinn er https://valur.felog.is. Leiðbeiningar um skráningu og greiðslu er að finna í pdf-skjali á heimasíðu félagsins. Kerfið er samtengt Rafrænni Reykjavík og því er mjög auðvelt að ráðstafa styrknum á sama tíma, sem svo dregst frá heildarupphæðinni. Kerfið býður uppá að skipta upp kreditkortagreiðslu á nokkur tímabil, allt eftir upphæð æfingagjalda. Ef óskað er eftir að greiða með öðrum hætti þarf viðkomandi að koma á skrifstofu Vals eða að hafa samband á skrifstofutíma kl.9:00-16:00.

 

 

Með kærri kveðju,

starfsfólk skrifstofu Vals


» 11 hafa sagt sína skoðun

20.12.2011 11:17:40 / Lobba

Jólanámskeið - 28.-30. desember

Sælar stelpur

Jólanámskeið verður í boði fyrir stráka og stelpur fædd árið 1998, 1999 og 2000. Námskeiðið verður með örlitlu beyttu sniði heldur en venjulega. Námskeiðið verður sambland af fótbolta og félagslegu. Námskeiðið fer fram 28.-30. desember og stendur frá klukkan 10:00 til 12:00 alla dagana. Hámark 20 komast á námskeiðið að þessu sinni. Heitur matur verður í hádeginu alla dagana.

 

Verð: 5.000krónur.


Innifalið í verði er: Heitur matur, þrjár æfingar, bingó, fyrirlestur og knattþrautir.


Skráning á valurkvk@gmail.com


Þið fáið staðfestingu til baka ef barnið ykkar verður eitt af fyrstu 20 til að skrá sig.


Mikilvægt að ganga frá greiðslu áður en námskeið byrjar.


Kveðja
- Birkir Örn og Magga

» 8 hafa sagt sína skoðun

14.12.2011 22:46:39 / Lobba

Frí á æfingu

Hæ stelpur

Við þjálfarar ætlum að gefa frí á æfingu á morgun, fimmtudag, vegna leikjarins í dag.

Síðasta æfing fyrir jólafrí verður mánudaginn í næstu viku. :)

Kveðja
- Birkir Örn og Magga

» 17 hafa sagt sína skoðun

13.12.2011 11:59:44 / Lobba

Æfingaleikur við Gróttu

Sæl veriði

Síðasta verkefni ársins er æfingaleikur við Gróttu á Seltjarnarnesi. Leikirnir fara fram á morgun, miðvikudag.

Liðin eru þannig:

A-lið: Mæting 15:40
Hlín
Eygló
Diljá
Katla
Signý
Elma
Auður E

B-lið: Mæting 15:40
Íris Björk
Eva
Klara
Selma
Vala
Ísabella (markmaður)
Karen

C-lið: Mæting 15:40
Anna Hedda
Hallgerður
María
Harpa
Hildur
Fríða
Freyja
Katrín Rut
Ísabella

Mæta á réttum tíma.


Kveðja
- Birkir Örn og Magga

» 20 hafa sagt sína skoðun

11.12.2011 12:57:34 / Lobba

Næstu tvær vikur hjá flokknum

Sælar stelpur

Nú fer að styttast í jólafrí hjá flokknum. Síðasta æfing fyrir jólafríið er mánudaginn 19. desember.

Við tökum æfingaleik við Gróttu á þeirra heimavelli á Seltjarnarnesi á miðvikudag.

Næstu dagar fram að jólafríi verða því þannig:

Mánudag: Æfing 15:10-16:30
Þriðjudagur: Æfing 15:10-16:30
Miðvikudagur: Leikur við Gróttu klukkan 16:00
Fimmtudagur: Æfing 15:10-16:30
Föstudagur: Frí
Laugardagur: Frí
Sunnudagur: Frí
Mánudagur: Æfing 15:10-16:30 - Síðasta æfing fyrir jólafrí

Einhverjar þurfa síðan að keppa með B-liði 4.flokks á Jólamóti KRR laugardaginn 17. des. Þær sem eiga að mæta verða látnar vita sérstaklega af því. :)

Kveðja
- Birkir Örn og Magga

» 7 hafa sagt sína skoðun

06.12.2011 12:55:53 / Lobba

Koma með innidót í dag

Sælar stelpur Það á að koma með inndót á æfingu í dag :)

» 12 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 49
Æfingartafla